U.M.F. Urrrriðinn
Könnun
Hvað vill fólk sjá á þessari síðu
Ég vill sjá áframhald á léttum myndböndum og bröndurum, það allavega fær mig til að kíkja reglulega á síðuna.
5 atkvæði

Ég vill eingöngu sjá efni sem er tengt bekknum og óska eftir að fá tölvupóst þegar nýtt efni kemur inn á síðuna.
4 atkvæði

(Og fyrir þennan/þessa sem ætlaði sér ekki að mæta á næsta hitting), ég vill sjá að þessari síðu verði lokað.
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 9
Klukkan
Leitarbox

Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 12955
30.12.2008 14:02:18 / gáski

gamlársparty


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 23:05:12 / gáski

Urrrriðasíðan óskar ...

Bekkjarfélögum, aðstandendum, mökum, börnum og öllum þeim sem lesa þessa frábæru síðu gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.  Með þökk fyrir árið sem er að líða og megi nýja árið færa okkur kraft og styrk til að halda úti jafn góðri síðu og raun ber vitni.  :d


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 14:23:44 / gáski

í tilefni jólanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2008 16:23:02 / gáski

Bjössi fær sitt lag


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 23:56:58 / gáski

Að lokinni hátíð

Það eru til fá orð sem lýsa þessari hátíð sem haldin var á Flúðum.  Þess vegna er búið að stofna nýtt albúm og við látum myndirnar lýsa þessu.  Að sjálfsögðu fóru þessar myndir í ritskoðun en þær lýsa samt svo vel stemmningunni sem var þarna.  Sögurnar látum við liggja milli hluta, því það sem gerist á Flúðum gerist á Flúðum.  :haha:

Fyrir hönd Gáskans langar mig að þakka þeim sem komu til okkar og tóku þátt í gleðinni fyrir gríðarlega skemmtilega helgi.
Formaðurinn :)

p.s. það vantar myndir frá íþróttahúsinu, gaman væri að fá þær sendar. simongeir@hotmail.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 22:07:37 / gáski

Til þeirra sem ætla sér að mæta á hátíðina

Nú þegar tveir dagar er þangað til að við hittumst á Flúðum er rétt að hafa eftirfarandi atriði á hreinu:

1)  Lokaþáttur af Singing Bee verður á föstudaginn og verður að því tilefni efnt til drykkjuleiks að dönskum sið.
2)  Karókee keppnin á föstudeginum verður, búið er að leigja tæki og tól til notkunar til söngs og skemmtunar. :lol:

3)  Mæting í "brönsið" á laugardeginum er klukkan 13:00.  Tugþraut hefst.  Mæting er í HÁAMÓA 4.
4)  Frá klukkan 14:00 til 16:00 verðum við í íþróttahúsinu á Flúðum.  Hafa með sér föt til að geta tekið virkan þátt. 
5)  Frá klukkan 16:00 til 17:00 heldur tugþrautin áfram.  Þessar 60 mín verðum við úti þannig gerið viðeigandi ráðstafanir með fatnað.
6)  Byrjað verður að grilla um sjöleytið, vinsamlegst hafið með ykkur kjöt á grill og drykkjarföng.  Salat, grillaðar kartöflur og sósur verða í boði Gáskans.

Ef einhverjar spurningar vakna er um að gera að hafa samband, hvort sem það sé í netpósti, í skoðanna tenglinu hér að neðan eða símleiðis.

Við í Gáskanum skorum á þá sem eru ennþá að velgjast í vafa um hvort það eigi að mæta eður ei, við lofum góðu stuði og mikilli skemmtun, þannig takið nú ákvörðun um að mæta.



» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 15:28:23 / gáski

6 dagar í hátíðina

Það er aldeilis orðið stutt í að við hittumst á Flúðum.  Skora ennþá á þá sem hafa ekki gefið svar að mæta og taka þátt.  Einu get ég lofað að það verður mikið stuð og mikið gaman eins og ein persónan hjá Ladda komst svo vel að orði.  Viljum hvetja fólk til að mæta klukkan 13:00 (þ.e.a.s. þeir sem ætla sér að koma á laugardeginum) i bústaðinn til okkar.  Þar fáum við okkur hressingu og gerum okkur klár í að hefja tugþrautina sem verður með dönsku yfirbragði.  Læt dagskrána seinna í vikunni inn á þessa heimasíðu.  Vona bara að allir séu í góðu stuði og mæti með góða skapið.  Einnig ef fólk á gamlar myndir að koma með þær, það er alltaf gaman að skoða the good old days.  Einnig ef einhverjir eiga þær í stafrænu formi að senda á mig svo ég geti sett inn í myndasöfnin hér til hliðar.
Hvet fólk líka að viðra sína skoðun hér fyrir neðan.:$

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 13:26:08 / gáski

Jákvæð og góð frétt

Já, kæru bekkjarsystkini þessi frétt inn á Vísi hreinlega bjargar vikunni.  Allavega veit ég um tvo aðra sem eru sammála mér með það.
http://www.visir.is/article/20081118/LIFID01/275447809

Kíkið á þetta og ég segi aðeins eitt: Líf og Fjör :d

10 dagar í hátíðina

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 17:26:13 / gáski

Saga af félaga

Saga af félaga mínum sem fann sér aðra kærustu.  Fyrrverandi konan átti að flytja annað.
Hún eyddi öllum deginum í að pakka dótinu sínu niður í kassa.

 Um kvöldið settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta
skipti, kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af
rækjum, rússneskum kavíar og drak flösku af Chardonnay.

Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróð
rækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum !
Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.

Þegar maðurinn kom tilbaka í húsið með nýju kærustuna sína, voru
fyrstu dagarnir ekkert nema gleði og hamingja. En svo byrjaði húsið smám saman að
lykta.
Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu og loftuðu út.

Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega, kannski voru þar dauðar mýs og rottur,
teppin voru hreinsuð og ilmpokum og loftfrískandi vörum var komið
fyrir alls staðar.

Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "gasað" gegn lyktinni, það þýddi,
að þetta hamingjusama parið þurfti að flytja út í nokkra daga.
Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega.
Ekkert hjálpaði.

Vinirnir hættu að koma í heimsókn. Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að vinna í húsinu.
Húshjálpin sagði upp.
Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau ákváðu að selja. Mánuði seinna hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hafi lækkað um helming.

Sagan gekk, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra. Að
lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán til að kaupa nýtt hús.
Fyrrverandi - eiginkonan hringdi til mannsins og spurði hvernig gengi.
Hann sagði henni söguna um rotna húsið.

Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla
heimilis síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið
aftur.
Maðurinn var viss um að, ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo
hann samdi við konuna að selja henni húsið á tíunda-hluta af markaðsverði,
gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs.  Hún samþykkti það.

Viku seinna stóðu maðurinn og kærastan í húsinu í síðasta sinn - þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar fluttningsbíllinn kom og sótti allt þeirra dót
til að keyra því yfir í nýja húsið.

- þar á meðal gardínustöngunum!!!!:d

bætti við myndum í albúmið.;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 10:13:44 / gáski

Súkkulaði

hafa reiknivél við hendina,

ALDUR ÞINN MEÐ SÚKKULAÐI-ÚTREIKNINGI  




ÞÚ MÁTT EKKI SVINDLA NÉ FARA BEINT Í NIÐUR!
Þetta tekur minna en 1 mínútu.
Reiknaðu jafnóðum og þú lest textann...
Þú mátt ekki lesa endinn áður en þú ert búin að reikna allt dæmið!
Þú ert ekki að spreða tímanum.  Og þú skemmtir þér örugglega!






cid:E98E4A363EEE4BB988C5BFAA8077FB34@HP63056991907








1. Hve oft í viku gætir þú hugsað þér að borða súkkulaði ? (talan á að vera stærri en 0 en minni en 10)

2. Margfaldaðu töluna með 2 (til að fá jafna tölu)


3. Plús 5

4. Margfaldaðu útkomuna með 50 (ég bíð á meðan þú kveikir á reiknivélinni !!)

5. Ef þú hefur þegar haldið uppá afmælisdaginn þinn í 2008, plús 1758.  Ef þú hefur ekki átt afmæli enn, plús 1757.

6. Dragðu fæðingarárið þitt frá ( 4-stafa tala).


Útkoman eru 3 tölustafir. Fyrsta talan er hve oft þú gætir hugsað þér að borða súkkulaði í víku.




Og næstu 2 tölur eru  ? ? ? ? ? ? . .  






ALDURINN ÞINN !! (júúúúúúúúúú !!! Þinn aldur !!!)



» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 15:49:26 / gáski

Skráningin á hátíðina

Núna hafa 13 fyrrum nemendur íþróttaskorar kennaraháskóla íslands skráð sig á afmælishátíðina.  Við strákarnir í Gáskanum erum 6 þannig alls verða þarna 19 manns úr 33 nemenda bekk (man reyndar ekki rétta tölu).  En það er alltaf von um að fleiri bætast í hópinn og verður það tilkynnt með tölvupósti og á þessari frábæru síðu sem við verðum að uppfæra reglulega. 
Munið að kjósa í könnuninni hér til hliðar.
  :d

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3